17.04.1937
Efri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (325)

4. mál, tolllög

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Fjhn. flytur brtt. á þskj. 345, þess efnis, að niður falli niðurlag 3. gr. frv. Þau orð, sem þarna er ætlazt til, að falli niður, eru byggð á því, að frv. til l. um breyt. á lögum nr. 54 15. júní 1936, um vörutoll, komist í gegnum þingið, en nú eru engar líkur til þess, að svo verði, og niðurlag greinarinnar á því ekki lengur við.