25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

11. mál, alþýðutryggingar

*Thor Thors:

Ég vil geta þess, að það kom greinilega fram í grg. frv. á síðasta þingi, að tilgangurinn væri sá, að skerða í engu þann rétt, sem þessi gamalmenni höfðu áður samkv. fyrri l., og þó að fleirum hefði verið gefið færi á að sækja um styrk, þá var það á færi sveitarstjórna að sjá um, að aðeins þau gamalmenni, sem áður höfðu notið styrks, fengju hann framvegis.