17.04.1937
Neðri deild: 41. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (343)

11. mál, alþýðutryggingar

*Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég skal aðeins geta þess út af ræðu hv. þm. Snæf., að svo er um fulltrúa Alþfl. í allshn., að þeir hefðu kosið að gera víðtækari og meiri breyt. á alþýðutryggingarl., og við hv. 2. þm. Reykv. höfum þegar afgr. nál., sem er meðmæli með frv., sem ég flutti til breytinga á alþýðutryggingarl. og er á þskj. 156. Að því leyti er allshn. öll sammála um að æskja eftir víðtækari breyt. En þar sem lítið útlit er fyrir, að slíkar breyt. nái fram að ganga á yfirstandandi þingi, hefir n. orðið sammála um þessar smábreyt., sem enginn ágreiningur er um, að samþ. verði.