20.04.1937
Neðri deild: 44. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

18. mál, leiga á mjólkurvinnslustöð

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég ætla ekki að lengja þessa umr., því þetta mál verður innan skamms sótt og varið á öðrum vettvangi, og skal ég þess vegna ekki endurtaka neitt af því, sem ég hefi áður sagt í hv. Ed.

Mér þykir leitt, að hv. 1. þm. Rang. skuli ekki vera við til þess að greiða atkv. með frv. núna, eins og hann hefir áður gert. Ég hygg, að það muni sýna sig þegar sókn og vörn í þessu máli lýkur, að hv. 1. þm. Rang. hafi verið forsjálli í þessu máli en hv. þm. G.-K.