22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (492)
86. mál, alþýðutryggingar
*Sigurður Kristjánsson:
Ég sé, að þetta mál hefir farið með einkennilega miklum hraða gegnum efri deild. Er það ekki fyrir það, að þetta mál sé einskis virði, heldur mun það vera vegna þess, að lögin, sem farið er fram á, að verði framlengd, falla úr gildi í lok þessa mánaðar, ef framlenging þeirra fæst ekki fyrir þann tíma. Nú er það svo, að þessi lög snerta hagsmuni mjög margra manna hér á landi, og það geysimikið, svo það er óréttlátt að láta þau fara í gegnum þingið með afbrigðum, eða ef svo mætti að orði kveða, að þeim sé laumað í gegnum þingið. Þeir menn, sem þarna eiga mikilla hagsmuna að gæta, eiga rétt á, að frv. sé athugað gaumgæfilega. Þar sem ég sé, að því á ekki að fylgja nein framsaga eða grg., vil ég fara fram á, að á þessu fyrsta stigi málsins sé því vísað til allshn., til þess að þeir, sem eiga hér hlut að máli, fái tækifæri til að birta sín sjónarmið og koma fram þeim rökum, sem þeir hafa að færa fyrir sínum hagsmunum. Ég vona, að hv. deild hafi ekki á móti því, að málið sæti svo vingjarnlegri meðferð, að það sé athugað í nefnd.