23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

86. mál, alþýðutryggingar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil mælast til þess, að þetta mál geti fengið skjóta afgreiðslu. Ef þarf að fá nál., er hægt að fá það fyrir 3. umr., því eigi þessi lög að komast í framkvæmd, þarf að ljúka afgreiðslu þeirra fyrir 1. apríl. Ég vil því mælast eindregið til þess, að þessum umr. verði lokið á þessum fundi.