23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (523)

86. mál, alþýðutryggingar

*Héðinn Valdimarsson:

Mér er ekki kunnugt um, að það hafi verið neinn ágreiningur um þetta mál innan n., og ég álít, að hægt sé að afgr. þetta mál án þess að hafa um það sérstakan fund, eins og oft á sér stað um smámál. Ég ætla ekki að fara í neinn samanburð á því, hvort sé stærra, þetta mál eða skiptameðferð „Kveldúlfs“. Ég álít það meiri þingskyldu mína að athuga það mál heldur en hvort halda beri fund í n. um mál, sem gera má ráð fyrir, að allir séu sammála um að afgreiða.