02.04.1937
Neðri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (557)

72. mál, leyfi til loftferða o. fl.

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Á þskj. 183 ber ég fram brtt. við 2. gr. 3. lið á þskj. 85, þar sem aðeins er um það að ræða að gera orðalagsbreyt., eins og hv. þdm. hafa sjálfsagt tekið eftir. Ég skal geta þess, að ég átti tal um þetta við umboðsmann félagsins hér á landi, Steingrím Jónsson rafmagnsstjóra, og hann var þessu samþykkur.

Ég vil svo mælast til þess, að hv. d. samþ. þetta.