18.03.1937
Neðri deild: 21. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (566)

56. mál, útflutningur á kjöti

Frsm. (Páll Zóphoníasson):

Herra forseti! Ég geri ekki ráð fyrir að þurfa að hafa langa framsögu í þessu máli. Samskonar frv. hefir legið fyrir þessari d. á tveimur undanförnum þingum og verið samþ. — Ástæður fyrir því að landbn. leggur öll til, að frv. verði samþ., eru sömu og undanfarin ár og því er óþarfi að fara að endurtaka þær frá fyrri þingum, þar sem líka allir hv. þdm. eru hinir sömu.