22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

56. mál, útflutningur á kjöti

Forseti (JörB):

Ég er búinn að taka þetta mál út af dagskrá áður og fresta umr. um það, svo ég sé mér ekki fært gegn mótmælum hv. flm. og hv. frsm. landbn. að taka málið út af dagskrá nú. Hygg ég rétt að láta skeika að sköpuðu. Það er þá eftir að athuga málið í Ed., ef illa þykir til takast hér. (HV: Má ekki bera þetta undir deildina?). Það er nú ekki venja.