15.03.1937
Efri deild: 19. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
60. mál, læknishéruð
*Bernharð Stefánsson:
Ég býst nú við, að það sé nauðsynlegt að setja l. í þessa átt, en ég vildi aðeins minnast á það sama og hv. 10. landsk. Ég sé ekki betur en að þetta frv. geti orðið til þess að nokkru leyti að svipta héruðin héraðslækni sínum. Ef það á t. d. að leysa héraðslækninn á Akureyri frá skyldu og jafnvel rétti til þess að stunda almenn læknisstörf, þá sé ég ekki annað en að héraðið sé svipt héraðslækninum í þeim skilningi, sem lagður hefir verið í það orð hingað til. Nú mun það verða fært til, að Akureyri hafi nægilega marga lækna, og það er rétt. En það er svo með lækna yfirleitt, að þeir vilja heldur stunda lækningar heima á vinnustofum sínum og vitja sjúklinga í þeim bæ, sem þeir hafa aðsetur sitt í, heldur en að fara í sjúkravitjanir út um sveitir. Ég get óttazt það, að ef frv. yrði að l. og engum lækni á Akureyri bæri skylda til þess að sinna lækniskalli út um sveitirnar, að af því gætu stafað vandræði. Og hér í Reykjavík mun það vera svo, að síðan bæjarlæknisembættið var stofnað, er einum lækni veittur styrkur til að stunda lækningar í Mosfellssveit og nágrenninu.
Ég vildi því taka undir þá fyrirspurn, sem hv. 10. landsk. flutti hér, að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ráðh. og eins hv. allshn., sem flytur þetta frv., hvort nokkuð hafi verið hugsað fyrir þessu atriði. Mér finnst það liggja nokkuð nærri — þó það sé nú kannske ekki svo aðgengilegt á þessum tímum að fjölga embættum —, að þetta frv. ætti að breytast þannig, að skipt væri núv. læknisembætti á Akureyri í 2 embætti, bæjarlæknisembætti, og því tilheyrðu þau störf, sem í frv. getur, og venjulegt héraðslæknisembætti.