12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í B-deild Alþingistíðinda. (713)

116. mál, jarðræktarlög

Forseti (JörB):

Út af þeim ummælum, sem fallið hafa um það, að þetta mál hafi gengið í gegnum d. með mestu leynd, vil ég taka það fram, að ég skil ekki, hvaða ástæðu menn hafa til þess að halda slíku fram. Þetta mál hefir verið prentað á dagskrá, en það hefir engin uppástunga komið fram um það, að vísa málinu til n. Og það er ekkert einsdæmi, að mál gangi í gegnum þingið án þess að fara, í n.; má t. d. nefna þau tvö mál, sem búið er að afgr. hér í dag.