06.03.1937
Neðri deild: 15. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

19. mál, sparisjóðurinn Gullfoss

Frsm. (Thor Thors):

Allshn. er sammála um að leggja til, að þetta frv. verði samþ. Þessi bráðabirgðalög voru sett vegna þess, að ekki náðist til allra innstæðueigenda í þessum sparisjóði, sem tekinn var til gjaldþrotaskipta, og því er nauðsynlegt að setja l. um, að sami réttur gangi yfir alla innstæðueigendurna.