15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (792)

65. mál, héraðsskólar

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég þakka hæstv. kennslumrh. fyrir yfirlýsingu hans um nál. og þá ósk hv. frsm. og mína, að séð verði um, að eldri stofnfjárframlög N.-Ísafjarðarsýslu verði efnd við Núpsskólann. Yfirlýsing á þessu stigi málsins fullnægir og verður gildandi fyrir hvaða kennslumrh. sem er.