05.04.1937
Neðri deild: 31. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (904)

79. mál, útrýming sels úr Húnaósi

*Frsm. (Jón Pálmason):

Eins og nál. landbn. á þskj. 171 ber með sér, hefir n. orðið á einu máli um að mæla með því, að þetta frv. nái fram að ganga með lítilsháttar breytingu, sem sé að þær bætur, sem um er að ræða í þessu sambandi, verði greiddar eins og þær eru metnar til tekna Steinnesprestakalli.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar en gert var við 1. umr., en vil mega vænta, að frv. fái greiðan gang áfram gegnum þingið.