19.11.1937
Neðri deild: 30. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1097)
56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
Sigurður Kristjánsson:
Þetta mál er nú til 3. umr. í hv. d., en ég hefi til meðferðar brtt. við frv. og fæ sennilega ekki tækifæri til þess að bera brtt, fram, ef málið verður afgr. nú. Þetta mál er búið að vera fyrir Alþ. í 2 ár, og þetta er framtíðarmál. Það hefir því ekki mikið að segja, hvort það er afgr. á þessum fundi eða síðar. Ég vil því fara fram á það við hæstv. forseta, að málið verði tekið af dagskrá nú, svo að mér gefizt tækifæri til þess að ganga frá þeim brtt., sem ég ætla að bera fram.