21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Ólafur Thors:
Það er náttúrlega ekki skylda mín að ganga til yfirheyrslu hjá hv. 5. þm. Reykv., Einari Olgeirssyni. En ég get gert honum það til geðs að fræða hann um afurðaverðið eins og það er áætlað á þessu ári. — Þó að síldarverð ytra mætti teljast fremur lægra en hærra heldur en var 1936, hefir miklu hærra verið borgað fyrir hrásíldina. Þá fékkst ekki hærra verð en 5,30 kr. fyrir málið, en við gerðum kröfu um 6 kr. a. m. k. Ef hinsvegar er miðað við verð síldarolíu, sem hækkaði úr 17 £ l0sh. upp í 21 £ smálestin, seld fyrirfram, þá mætti meta málið 1,50–2,00 kr. hærra nú en 1936. Þá hefði síldin samkv. verðinu 1936 átt að komast upp í 6,80–7,30 kr. málið og samkv. minni kröfu upp í 7,50–8,00 kr. málið, eða nálægt því, sem greitt var í sumar.
Ég veit ekki, hvort hv. þm. telur þessar upplýsingar nægja sér, en þær eru skýrar frá minni hendi. Ég hefi svarað honum svo oft áður, að ég hirði ekki um það nú. Mér er það eitt aðalatriði, að málið nái fram að ganga.