03.12.1937
Efri deild: 41. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1353)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Magnús Jónsson:

Eins og nál. ber með sér, var ég ekki viðstaddur, þegar málið var afgr. í fjhn. Ég hafði þó hugsað mér að gera grein fyrir sérstöðu minni gagnvart frv. við þessa umr., en vegna tafa frá störfum mun ég geyma mér þá grg. til 3. umr.