11.12.1937
Efri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (1376)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. við frv. um bráðabirðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga frá hv. þm. Hafnf. og hv. þm. Vestm. Brtt. er við 3. gr., að aftan við 1. tölul. bætist: „Endurgreiða skal þó þennan skattauka af öllum vörum, sem hér eru nefndar og ætlaðar eru til útgerðar“.

Það þarf tvennskonar afbrigði til þess að brtt. megi koma fyrir.