20.12.1937
Efri deild: 53. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (1471)
124. mál, alþýðutryggingar
Páll Zóphóníasson:
Ég hefi ekki mikið um mál þetta að segja, en ég vildi ekki láta því ómótmælt, sem hv. 11. landsk. sagði, að þm. hefðu litið aðhafzt framan af þingi. Það sama hefir margsinnis verið sagt í blaði því, sem þessi hv. þm. stendur að. Ég vil því spyrja hann og aðra sjálfstæðismenn: Hvað voru þeir að gera framan af þinginu? Því komu þeir svo seint fram með sín mál, að þau þurfa afbrigði til að komast að? Ég get bent á 10–20 mál, sem sjálfstæðismenn hafa borið fram, svo seint að þurft hefir að leita afbrigða um þau. Það situr því ekki á þessum hv. þm. að vita þingmeirihlutann fyrir seinlæti með að bera fram frumvörp sín.