21.12.1937
Efri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)

124. mál, alþýðutryggingar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) :

Þessi till., sem ég ber hér fram, er í beinu framhaldi af því, sem áður hefir verið sagt við þessa umr. Ástæðan til þess, að hún er fram borin, er sú, að samningar, sem einstaka sjúkrasamlög hafa gert, gilda fram til 1. júlí næstkomandi.