12.11.1937
Neðri deild: 25. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Meiri hl. fjhn. leggur til, samkv. nál. á þskj. 91, að þetta frv. um gjaldeyrisverzlun o. fl. verði samþ. óbreytt. Nú á þessum fundi hefir verið úthlutað nál. frá minni hl. n., hv. þm. G.-K. Ég sé ekki ástæðu til að fara út í umr. um það að svo stöddu, meðan hann hefir ekki gert grein fyrir þeim breyt., sem hann telur æskilegar á frv.