20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Jakob Möller:

Hv. þm. G.-K. hefir tekið af mér ómakið með að leiðrétta misskilning þann, sem kom fram í ræðu hv. 5. þm. Reykv. með brtt. okkar hv. þm. Vestm. við gjaldeyrislögin. Með þeirri brtt. er að nokkru takmarkaður réttur framleiðenda til að ráða yfir þeim gjaldeyri, er þeir afla sér. En komi sú till. á nokkurn hátt í bága við þá till., sem hér er flutt, erum við flm. fúsir að breyta henni til samræmis.