12.11.1937
Neðri deild: 25. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (158)

4. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Frsm. (Finnur Jónsson) :

Þar sem sýnt var, að lánveitingum úr skuldaskilasjóði yrði eigi lokið fyrir 30. sept., eins og ákveðið er í l., þótti rétt að lengja tímann til 31. des., og er hér farið fram á þetta. Sjútvn. hefir athugað málið og leggur til, að þessi breyt. verði samþ.