02.12.1937
Efri deild: 40. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1587)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Mér virðist mega skoða hv. 1. þm. Reykv. sem sérstakan nefndarhluta, þar sem hann skrifar undir skilorðsbundið og bar síðan fram brtt., svo um misskilning er ekki að ræða af minni hendi. Ég ætla ekki að gera neitt kappsmál úr þessu, og auðvitað ræður hæstv. forseti, hvað gert verður. Mér finnst ekki, að uppástunga hæstv. fjmrh. muni flýta meir fyrir málinu en þótt því væri alveg frestað til morguns.