14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)

Afgreiðsla þingmála

*Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég flutti snemma á þessu þingi þáltill. í sameinuðu þingi viðvíkjandi viðbótarfjárveitingu til dýpkunar á Vestmannaeyjahöfn. Till. var vísað til 2. umr. og til fjvn. Sú nefnd hefir ekki látið til sín heyra um það mál, og vil ég beina samskonar tilmælum til hæstv. forseta í tilefni af þessu eins og hv. 6. þm. Reykv. hefir gert viðvíkjandi öðrum till.