22.12.1937
Sameinað þing: 19. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)

Afgreiðsla þingmála

*forseti (JBald) :

Ég vil nota þetta tækifæri til að bera undir Alþingi, hvort það vilji fallast á að fela forseta og öðrum skrifara eða báðum að ganga frá þeim bókunum gerðabókar, sem óstaðfestar eru, og þeim, sem verða óstaðfestar, þegar þingi lýkur, vegna þess að ekki hefir unnizt tími til að gera hvorttveggja í einu, að leiðrétta fjárlög og færa inn hinar víðtæku brtt. við fjárlögin.