29.11.1937
Neðri deild: 38. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)

Minning látinna manna

forseti (JörB) :

Vegna fráfalls Magnúsar Guðmundssonar alþm. fellur niður fundur hér í hv. d. í dag.

Fundur hefst á morgun á venjulegum tíma, kl. 1, og verða hin sömu mál þá tekin á dagskrá sem standa á dagskrá þessa fundar.