11.11.1937
Sameinað þing: 5. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)

Þingvíti

Finnur Jónsson:

Þar sem hv. þm. G.-K. hefir flutt þá ásökun á hendur Alþfl., að hann hafi verið fjarverandi í hv. rd. í heila viku, þá vænti ég þess, að hann finni þessum orðum sínum stað með tilvitnunum í fundabókun, annars falli þessi ummæli hans ógild sem hans venjulegu ósannindi.