22.12.1937
Neðri deild: 59. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)

Starfslok deilda

forseti (JörB) :

Störfum d. er nú lokið. Ég vil þakka hv. þdm. einkar gott samstarf á þessu þingi og hversu þeir hafa verið mér eftirlátir um afgreiðslu mála og öll vinnubrögð. Ég óska utanbæjarþm. góðrar ferðar og góðrar heimkomu, og öllum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs. Hittumst allir heilir á næsta þingi.