21.10.1937
Neðri deild: 7. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

29. mál, ríkisreikningurinn 1935

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Frv. þetta er samið eftir sömu reglum og áður hefir verið um samskonar frv., og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um það, en vil vísa til ríkisreikningsins fyrir árið 1935, sem hefir verið lagður fyrir hv. d., til upplýsinga. Óska ég, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjhn.