25.10.1937
Neðri deild: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (1840)
22. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Flm. (Ólafur Thors):
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv., bæði af því, að það hefir verið flutt á undanförnum þingum, svo það má vera kunnugt öllum hv. þm., sem setið hafa í þingi áður, auk þess eru fyrir þessu frv. mjög hin sömu rök og færð hafa verið fyrir frv. okkar sjálfstæðismanna um ríkisstyrk til byggingar niðursuðuverksmiðja fyrir fisk, því bæði þessi frv. eru borin fram sjávarútveginum til framdráttar. Auk þess geri ég ráð fyrir, að afdrif þessa máls velti á öðru fremur en umr. hér í þessari hv. d., og læt mér því nægja að visa til fyrri grg. með þessu frv. og umr. um það annað frv. okkar sjálfstæðismanna, er ég nefndi. Óska ég svo, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sjútvn.