28.10.1937
Efri deild: 13. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í C-deild Alþingistíðinda. (2133)

33. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

Flm. (Bjarni Snæbjörnsson):

Þar sem til fjhn. er vísað frv. um tekjur og skatta til ríkissjóðs, og þar sem þetta frv. snertir ríkissjóð að því leyti sem það kemur við tekjur ríkissjóðs, álít ég, að þetta frv. eigi að fara til þeirrar n. Í öðru lagi er allshn. svo störfum hlaðin, en síður fjhn., að ég álít miklu skynsamlegra að vísa málinu til fjhn. til betri og fljótari afgreiðslu.