30.10.1937
Efri deild: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í C-deild Alþingistíðinda. (2149)

58. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Þorsteinn Þorsteinsson:

Það er nú svo komið, að ég sé, að ég á eftir að binda bagga mína með kommúnistum í þessu máli.

Hv. 1. landsk. hefir tekið upp frv. okkar hv. fyrrv. þm. N.-Ísf. frá því í fyrra, þótt hann gangi að vísu nokkru lengra en við gerðum. Ég vona þó, að þetta mál geti lagazt svo í meðförunum, að við getum orðið sammála um það. Mér finnst að vísu, að við höfum gengið nógu langt í fyrra, en ég vænti þess, að hv. 1. landsk. komi mér nú til hjálpar í stað hv. fyrrv. þm. N.-Ísf.