14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2201)

67. mál, kaup á Efra-Hvoli

Frsm. (Helgi Jónasson):

Nefndin er sammála um að leggja til, að till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir. En ég vil leyfa mér að láta þá ósk í ljós við ríkisstj., að hún hraði þessu eins mikið og unnt er, að ganga úr skugga um, hvort gæti orðið úr þessum kaupum. því að ef ekki, þá hugsum við flm. okkur að bera fram málið á næsta þingi.