15.12.1937
Efri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (2207)

135. mál, lax- og silungsveiði

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil taka undir það með hv. 9. landsk., að ég tel rétt, að þessi þáltill. verði samþ. Og ég vil taka það fram, að hún er ekki í því sambandi við málið, sem var rætt hér áðan ( 52. mál ), að ég telji ekki alveg jafnrétt og sjálfsagt að samþ. það frv., þótt þessi þáltill. verði samþ. og stofnað sé til þess að flytja frv. um þau atriði veiðiskaparins, sem þáltill. miðar að, á næsta þingi. Það er sjálfsagt að samþ. frv. á þskj. 57, hvernig sem fer um þessa þáltill. (JBald: Ekki segi ég það nú).