21.12.1937
Sameinað þing: 18. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (2357)

121. mál, Gilsnáma í Hólshreppi

Héðinn Valdimarsson:

Hv. þm. N.-Ísf. hafði beint umsókn um þetta til fjvn. áður en þál.till. komu fram, og nefndin tók upp fjárhæð í þessu skyni, sem samþ. var í fjárl. Það er auðvitað ekki hægt að segja fyrirfram, hvað mikið fé þarf til þessarar rannsóknar, enda stendur ekkert um það í þáltill. Að því leyti er hún óþörf. En það er kannske hægt að segja um leið, að hún sé skaðlaus.