22.11.1937
Efri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í D-deild Alþingistíðinda. (2410)

102. mál, stýrimanna- og vélfræðiskóli í Reykjavík

Forseti (EÁrna):

Ég lít svo á, að samkv. efni þessarar þáltill. hafi hún í för með sér kostnað, sem á að greiðast úr ríkissjóði. En samkv. 29. gr. þingskapanna er svo fyrir mælt, að allar þáltill., sem fara fram á útgjöld úr ríkissjóði, skuli bera fram í sameinuðu Alþ. og hafa skuli tvær umr. um þær. Þessi þáltill. getur því ekki komið til umr. hér í hv. d.