18.11.1937
Sameinað þing: 7. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í D-deild Alþingistíðinda. (2459)

42. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég sé, að hv. fyrri flm. þessarar þáltill. er ekki hér á fundi, og vil þá fyrir hönd okkar beggja, þar sem frv. hefir verið lagt fram í hv. Nd. um breyt. á gjaldeyrisl., fara þess á leit, að meðferð þessarar þáltill. verði frestað um sinn, a. m. k. þar til séð verður, í hvaða formi það frv., sem ég gat um, að hefði verið lagt fram í hv. Nd., verður afgr. frá þeirri hv. d. Vil ég af þessum ástæðum fara fram á, að þetta mál verði tekið af dagskrá að þessu sinni.

Forseti tók málið af dagskrá, og var það ekki á dagskrá tekið framar.