12.11.1937
Efri deild: 25. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Frv. (Bernharð Stefánsson) :

Eins og sést á nál. fjhn. á þskj. 111, mælir n. með því, að þetta frv. verði samþ. Einn nm., hv. 1. þm. Reykv., hefir þó skrifað undir nál. með fyrirvara, og geri ég ráð fyrir, að hann geri grein fyrir honum. Ég sé ekki ástæðu til að bæta neinu við það, sem ég tók fram við 1. umr. og í grg. fyrir frv. stendur.