20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Skúli Guðmundsson:

Af því að hv. frsm. (SvbH) er ekki við, vil ég gera grein fyrir því nál., sem hér er á þskj. 144 frá fjhn. um þetta mál.

N. leggur til, að frv. verði samþ. Tveir nm., hv. þm. G.-K. og hv. 4. landsk., skrifuðu undir nál. með fyrirvara og kváðust mundu gera grein fyrir honum í umr.