06.12.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

1. mál, fjárlög 1938

Ólafur Thors:

Þingsköp mæla svo fyrir, að við framhald fyrstu umr. fari fram hinar svokölluðu eldhúsdagsumr. í útvarpinu. Það hefir orðið að samkomulagi milli þingflokkanna, að þeim umr. skuli frestað, af ástæðum, sem öllum hv. þm. eru kunnar. En síðar mun verða samið milli flokkanna, hvenær umr. fari fram, og þá einnig, hvort þær verða í því formi, sem þingsköp ætlast til, eða þeim verði breytt frá því, sem þingsköp gera ráð fyrir.