24.11.1937
Neðri deild: 34. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
107. mál, fiskimálanefnd o. fl.
*Sigurður Kristjánsson:
Hv. síðasti ræðumaður sagði, að sjálfstæðismenn teldu sjávarútveginn einkaeign Sjálfstfl. Ég veit ekki, hvaðan hv. þm. kemur þessi speki. En það hefir orðið svo, að sjálfstæðismenn hafa lengst af lagt sitt fram öðrum fremur í þennan atvinnuveg, og hafa því mesta þekkingu á honum og mesta reynsluna í þessum efnum. — Hv. þm. taldi, að sjávarútvegurinn hefði verið þung byrði á ríkinu og bönkunum. Þarna er öllu snúið öfugt. Ég veit ekki betur en að sjávarútveginum hafi blætt út vegna þeirra fórna, sem af honum hefir verið krafizt í ríkissjóð. Hv. þm. nefndi hvað eftir annað fyrirtækið Kveldúlf og sagði, að því væri haldið uppi af ríkinu og bönkunum. Ég veit ekki til, að nokkurntíma hafi verið farið fram á það, að hið opinbera styrkti þetta fyrirtæki, hitt vita allir, að gerð hefir verið ákveðin tilraun til þess á opinberum vettvangi að setja þetta félag á höfuðið. (EOl: Á ríkið ekkert í Landsbankanum?) Mér vitanlega hefir Landsbankinn ekki tapað eyri á þessu fyrirtæki. — Hv. þm. var að heimta skýrslur um það, hvernig verðjöfnunarsjóðsgjaldinu hefði verið varið. Því spyr hv. þm. ekki hæstv. atvmrh. að þessu? Það er þegar búið að gera fulla grein fyrir því, hvernig fé þessu var varið, og eigendur sjóðsins eru búnir að leggja samþykki sitt á það. Þetta virðist hv. þm. ekki hafa hugmynd um, og má það merkilegt heita.