10.11.1937
Neðri deild: 24. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (530)

77. mál, bráðabirgðaverðtollur

Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Ég þarf ekki miklu að bæta við þau rök, sem færð eru fram með frv. þessu í grg. Ég skal aðeins geta þess, að mál þetta lá fyrir iðnn. í fyrra, og var n. á einu máli um að flytja frv. um þetta efni, en eins og sjá má í grg., þá varð ekki úr því, sakir þess, hve áliðið var orðið þings, er málið komst í hendur n. Er frv. það, sem hér liggur fyrir, flutt af allri n. ágreiningslaust. Hefi ég því ekki aðrar óskir fram að færa frá n. en að frv. fái að ganga sem greiðast áfram í gegnum þingið.