14.12.1937
Efri deild: 49. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (544)

77. mál, bráðabirgðaverðtollur

Frsm. (Bjarni Snæbjörnsson):

Hv. síðasti ræðumaður vildi láta fresta umr., svo að iðnn. gæti athugað málið betur. Ég sé enga ástæðu til þess, þar sem þetta er 2. umr., og n. gæti athugað það atriði, sem hv. ræðumaður minntist á, milli 2. og 3. umr.