15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

117. mál, eignarnám í Grímsey

Frsm. (Bergur Jónsson):

Í þessu frv. er farið fram á að fá heimild til þess að taka eignarnámi landspildu í Sandvíkurlandi í Grímsey undir bryggju, sem þegar er búið að reisa. Þetta mál gekk mótmæla- og mótatkvæðalaust í gegnum Ed., og allshn. Nd. leggur til, að frv. verði samþ., en tveir nm. hafa skrifað undir með fyrirvara, og munu þeir gera grein fyrir honum.