18.12.1937
Efri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (764)

109. mál, hafnargerð á Hofsósi

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti! Það er sama um þetta mál að segja og málið hér á undan (hafnargerð á Suðureyri). Á l. sjálfum er í raun og veru enginn mismunur. N. leggur einnig til, að þetta frv. verði samþ. Þó að gefi verið álitamál, hvort eigi að byggja höfnina, vill n., að þessi heimildarl. nái fram að ganga.