29.04.1938
Neðri deild: 57. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (1012)

46. mál, samvinnufélög

*Frsm. (Bergur Jónsson):

Þetta frv. er hingað komið frá Ed. Allshn. leggur til, að það verði samþ. með þeirri breyt., sem er á þskj. 3á0. Þar er ekki um efnisbreyt. að ræða, heldur að setja inn í frv. ákvæði, sem sýnir ástæðuna fyrir þeirri breyt., sem farið er fram á í frv., sem sé að heimilt sé, til þess að tryggja viðskipti félagsdeilda við félag, að taka tillit til heildarvöruskipta deildanna við félagið, þegar ákveðin er fulltrúatala þess. Hér er ekki um neina efnisbreyt. að ræða, og er n. sammála um að samþ. frv. á þennan hátt.