29.04.1938
Neðri deild: 57. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)

46. mál, samvinnufélög

*Frsm. (Bergur Jónsson):

Ég vil bara taka fram, að það er réttur skilningur, sem hv. 5. landsk. hélt hér fram, að það er meining bæði flm. og n. með þessu að tryggja, að hvorki félagsdeildir eða félög séu til málamynda innan Sambandsins, heldur að hægt sé að krefjast þess, að þau sýni það með viðskiptum sínum, að þeim sé alvara að taka þátt í viðkomandi félagi eða Sambandinu.