08.04.1938
Efri deild: 44. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 763 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)
59. mál, byggingar- og landnámssjóður
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti! Hv. frsm. mælti fyrir brtt. n. í samræmi við skoðanir okkar meðnm. sinna, að undantekinni 4. brtt., sem honum sást eiginlega yfir, sennilega af gleymsku. Hann drap á það, að eignatjónið, sem talað er um í brtt., gæti fyrst og fremst verið tjón af jarðskjálftum eða ofviðri. En við hinir, hv. 11. landsk. og ég, lítum svo á, að þeim, sem mest afhroð hafa goldið af völdum mæðiveikinnar, væri sjálfsagt að veita sem mestan byggingarstyrk, til þess að þeir gætu haldizt við á jörðum sínum. Við vorum búnir að koma okkur saman um að orða 4. brtt. þannig, að „þó gangi þeir fyrir á hverjum tíma um lán og styrki eftir lögum þessum, sem orðið hafa fyrir fjárfelli, landskjálftum eða öðru óviðráðanlegu stórtjóni á eignum sínum“. Ég vil undirstrika það, að ætlun okkar hv. 11. landsk. með 4. brtt. var, að þetta yrði sérstaklega til að bæta upp að einhverju leyti eignatjónið af veikinnar völdum, og getum því ekki gengið fram hjá því í umræðum, þó að við gerðum það til samkomulags við hv. 1. þm. N.-M. að orða þetta ekki ákveðnar en gert er í brtt.